11.11.2008 | 21:20
Óvæntar myndir
Af því að allt gengur bara bærilega og við komumst að því að maður er bara með 100mb frítt pláss á blog.is að þá eyddum við nokkrum eldri myndum og settum inn nýjar í staðinn.
Hrafnhildur og Harpa fóru á laugardeginum í bæjarferð.
Á sunnudeginum var síðan haldið í Den gamle By.
Kolbrún Soffía lét fara vel um sig.
Hafnargatan í Den Gamle By. Turninn tilheyrir augljóslega ekki Gamla bænum :)
Fjölskyldan við hafnarbakkann. Stelpurnar að koma út úr apótekinu. Hörpu vantaði Panodil en hann kláraðist árið 1897 í þessari verslun :)
Harpa fyrir utan Bakaríið þar sem hægt var að kaupa allskonar góðgæti.
Stelpurnar á aðaltorginu.
Eftir Den Gamle by var skellt sér í Bruuns Gallerí verslanamiðstöðina og farið á kaffihús.
Alvöru kreppusamloka að hætti hússins.
Raklette kvöld með Stavnsvejbúunum á neðri hæðinni
Þessi pæja verður á Íslandi 10 des!
Þegar það er kreppa að þá er best að mála sjálfur myndirnar sem á að hengja upp á vegg.
Maður þarf að passa sig að mála ekki útfyrir.
Munið að kvitta annars klíni ég í ykkur :)
Athugasemdir
En skemmtilegar myndir, á enn eftir að lesa síðustu færslu, geri það við tækifæri, þarf að halda áfram að læra
Karitas (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 22:29
Sætar myndir af ykkur, hún er algjört æði hún Kolbrún Soffía. Get ekki beðið eftir að knúsa hana :)
kossar og knúsar
Ásdís Dagmar (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 23:11
Hæ hæ sæta fjölskylda!! Það er alltaf jafn gaman að kíkja hér inn og ég þorði ekki öðru en að kvitta fyrir mig í þetta skiptið ;)
Risa knúsar frá okkur öllum
Hanna, Gunni, Sara og Daníel Páll
Hanna Björk (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 23:51
Hæ hæ.
Við þorðum ekki annað en að kvitta því litla músin var ansi skrautleg á fingrunum hehe :) Ísak Freyr var að gera fingramynd í leikskólanum í dag og hefur eflaust verið jafn skrautlegur, allavega voru buxurnar hans flottar ;)
Hlökkum mikið til að hitta ykkur í des...
kossar og knús
Ísak Frey og Katrín
Katrín og Ísak Freyr (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 23:10
Sæl litla fjölskylda, takk fyrir fínar myndir, þori ekki annað en kvitta. Sennilega verður hún Kolbrún Soffía málari. 28 dagar eftir.
kær kveðja Amma Kolla og Afi simmi
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 12.11.2008 kl. 23:11
kvitt kvitt. Rosa fínar myndir úr gamla bænum. Hvað kosta myndirnar eftir Kolbrún Soffíu ??? Væri til í að kaupa eina
Kveðja frá Lundi.
Ps. erum rosa spennt að fá ykkur í heimsókn í byrjun des.
Silja (IP-tala skráð) 15.11.2008 kl. 10:40
Þetta er án efa girnilegasta kreppusamloka sem ég hef séð!
Ég hlakka ekkert smá til að sjá ykkur á morgun! :D Jibbí
Kveðja,Rakel
Rakel (IP-tala skráð) 16.11.2008 kl. 00:59
Ég reyndi þvílíkt um daginn að kommenta við síðustu færslu en tókst það ekki. Ætli ég sé ekki bara svona léleg í stærðfræði ;)
Rakel again (IP-tala skráð) 16.11.2008 kl. 01:00
djíses hvað mig langar að vera með ykkur núna, taka fimbulfambtjill... það væri næs, kannski í næsta mánuði? :)
tinns (IP-tala skráð) 16.11.2008 kl. 23:18
hehe þetta er aldeilis gott kreppuráð;) svo er auðvitað hægt að gefa málverkin í jólagjöf og spara þannig nokkrar kreppukrónur:P
Líst líka vel á kreppulokuna a la Tor ! ;)
Steinunn Pálmadóttir (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 18:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.